óvenjulega venjuleg stelpa?
Myndasöfn
05.01.2006 18:11:46 / hulda

bara að prófa...

já einog alltaf fæ ég leið á hlutunum um leið og ég er búin að læra almennilega á þá... svo ég varð bara að prófa eitthvað nýtt svo ég bjó til nýja síðu er samt ekki viss um að ég ætli að nota hana en ákvað samt að prófa svo endilega kíkkið og segjið hvað ykkur finnst:)

http://fridafraenka.blogspot.com/ vola!:D

hulda rún stefánsdóttir!


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 16:45:35 / hulda

hvaða frelsi

ég hata að læra

ég hata að vita ekkert

ég hata að kaupa eitthvað svo er það bara drasl

ég hata fólk sem þarf alltaf að vera að gagnrýna mann

ég hata vind

ég hata fullkomið fólk

ég hata að hafa engan sjálfsaga

ég hata þegar ekkert að að ganga upp

ég hata vesen

ég hata að eiga ekki pening

það sem er búið að vera að pirra mig í dag.. ákvað bara að skrifa það til að muna örugglega allt mundi þá meira og er bara ennþá pirraðari í vikið!

en já þér fannst eflaust brjálað gaman að lesa þetta!

hulda rún pirraða!


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 15:39:23 / hulda

árið er liðið....

jæja bara komið nýtt ár og samt sem áður ótrúlega fátt breytt! en já ég ætla aðeins að gera útdrátt af árinu 2005 þar sem að ég missti það útúr mér að ekkert hefði gerst og það voru fáir sammála mér svo ég ætla aðeins að rifja upp....

-ég varð 17 ára fékk bílpróf of héllt hörku afmælisteiti með margréti:)

- ég kláraði 1. bekk í ma

-ég fór til spánar

-ég kynntist skemmtilegu fólki... og kannski nokkrum óskemmtilegum heh

-ég kvaddi önnu með mörgum tárum og hún fór til brasilíu!

-ég flutti í nýtt hús

-ég eignaðist eina karlmanninn í lífi mínu fyrir utan pabba:) sem er semsagt ottó!

-ég lærði að traust er flókið fyrirbæri!

-ég áttaði mig á því að ég er undarleg

-ég byrjaði í 2-f frábær bekkur:)

æi ég er örugglega að gleyma einhverju en þá bara kommentið um það...;)

annars er fátt í fréttum.... bara endalaust vesen og lærdómur.. gaman gaman!´

en já ég er farin að læra

sjáumst strumpar

hulda rún stefánsdóttir pálsson!

ps. nei ég á ekki kærasta ottó er gullfiskurinn minn;) hah


» 12 hafa sagt sína skoðun

29.12.2005 19:52:19 / hulda

major label

ég get ekki beðið eftir því að jólin verði búin! þá fer fólk að taka niður jólaskraut og greyið fólkið sem missti sig í skrautinu! en já það besta er að þá getur maður farið útúr húsi og keyrt um þennan fallega bæ án þess að fá ófbirtu í augun og æluna í hálsinn sökum gjörsamlega smekklausra akureyringa!! sem geta ekki skreytt smá og notað sama litinn allstaðar!!

en já fátt í fréttum annars er búin að gera fátt annað nema hanga með arnrúnu þessa dagana sem er auðvitað ávallt stuð;) náði í hana í vinnuna í fyrradag og við rúntuðum fram eftir nóttu og svo náði hún í mig í gær og það var svipað kveld, svo skelltum ivð okkur í fjallið í dag og hvað er málið með þetta nýja dæmi hjá lyftunum!!! og hvað er málið með það  að árskortið mitt virki bara ekkert lengur sem betur fer tókst mér að rífa mig aðeins í dag og fá frítt ég var alveg band brjáluð hann eitthvað já þetta gildir bara veturinn 2005 halló er ekki veturinn 2005 hjá þér eða og svo loksins sagði hann að ég fengi miða en já endilega ef þið hafið eitthvað farið í fjallið látið mig vita hvað ykkur finnst um þetta nýja dæmi?

hvað haldiði að ég hafi séð þegar ég vaknaði í morgun og leit á símann? jú sms frá honum markúsi og haldiði ekki bara að ég sé að fara að borða jólamat með vinnufélögunum í kvöld jújú allt að gerast!!:)

en já ég ætla að fara að slútta þessu en já verð að segja ykkur ég gerði uppgvötun uppí fjalli í dag hver þarf karlmann ef maður hefur eitt stykki arnrúnu við hendina haha og hvað þá ef maður hefur 2 einsog ég;)

en já ég er hætt er að far aí klippingu á morgun:D vá góð saga

bless! hrs (hah rím)


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.12.2005 17:41:15 / hulda

athugasemdir!

gleðileg jól! gott nýtt ár! mikla peninga og velgengni!

búin að koma þessu frá. annars eru jólin búin að vera fín.. borðaði góðan mat, opnaði flotta pakka og las 8 blaðsína jólabréf frá önnu:) svo eru bara áramótin á næsta leyti og vonandi verða þau skemmtilegri en síðustu sem einkenndust af hlaupum, leigubílaferðum með ókunnugum, undarlegum partíum, miklis kulda og pirrings! en ég er nokkuð viss um að þessi verða aðeins skárri! þegar áramótin renna í garð eru akkúrat 13 dagar í afmælið mitt eða eftir 00:00 eru það 12 dagar vá hvað ég er að verða gömul ég fer að fá hrukkur!

ég ætla að finna mér eitthvað orð til að ofnota á nýja árina eitthvað svona "trend" þar sem að ég horfi ekki á annað en sex and the city þessa dagana sökum þess að ég fékk allar seríurnar á dvd í jólagjöf þá verður það örugglega eitthvað á borð við faboulus.... en hver veit kemur í ljós!

svo eru það nýársheitin já ætli maður strengi ekki nokkur svoleiðis bara svona uppá gamanið... nenni nú samt ekki að fara að opinbera þau hér.. ;)

en já hvað get ég sagt ég er búin að gera ósköp lítið um jólin var að vinna til 00:00 þá sóttu camilla og arnrún mig í vinnuna og við vorum bara eitthvað að keyra og fíbblast pikkuðum svo þorstein uppí og var hann með okkur dágóða stund og þá var bara ennþá meira fjör vantaði bara önnu;) en já svo var það bara heim að horfa á sex and the city klukkan hálf fimm og svo sofa klukkan hálf sjö....

já lífið er skemmtilegt... ætlaði svo uppí fjall í dag en leist ekkert á veðrið svo ég hætti við:S verð að fara að drífa mig get örugglega ekkert á bretti lengur... ætla allavega að fara með einhverri manneskju sem er ekki 100 sinnum betri en ég næst þegar ég fer...;)

en já ég er hætt nenni þessu ekki lengur... sjáumst um áramótin:)

That's the thing about needs. Sometimes when you get them met, you don't need them anymore.

bestu þættir allra tíma!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.12.2005 01:27:43 / hulda

tilvistakreppa!

stundum er ég bara alveg tóm svo tóm að það má aðeins heyra smá hringl þegar ég hristi hausinn og það mun vera lausa skrúfan sem er þarna einvherstaðar inní tómarúminu! en á einvhern ótrúelgan hátt verð ég bara alltíeinu alveg troðfull af allskyns spurningum og fer að hugsa! já þegar ég fer að hugsa er voðinn vís!

þegar ég byrja að hugsa fæ ég þessar rosalegu hugmyndir um lífið og tilveruna og hugsa oft "jiii ég ætti að verða vísindamaður" já ég er oft alveg komin á þá kenningu að ég sé virkilega næsti einstein! ég fer að skilja ólíklegustu hluti og spyrja sjálfa mig ólíklegustu spurninga! hér koma nokkur góð dæmi! "hvað ætli það séu margar stjörnur?" "afhverju er ég ég en ekki einhver annar?" "þegar ég er ekki einhverstaðar er samt alveg allt að gerast en ég bara sé það ekki?" (þessi er flókin) " þegar ég dey heldur þá bara allt áfram hérna án mín?" "er einhver ein manneskja ætluð hverjum og einum og eru bara sumir sem finna manneskjuna en hinir enda annaðhvort einir eða með viltausri manneskju?" "er til guð?" "er ég í svona sjónvarpsþátt einsog the truman show?" já þetta eru bara örfá dæmi þess spurningaflóðs sem bókstaflega er að drekkja mér annað slagið!

ég er farin að hugsa!

hulda sem verður brátt gráhærð... og með hrukkur á enninu!


» 18 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 15:17:18 / hulda

jóla hvað?

já í dag var síðasti skóladagurinn fyrir jól:) og þetta var án efa einn tilgangslausasti skóladagur sem ég hef upplifað! mætti í einn tíma og það var ekki einusinni tími svo við stóðum þarna í svona 10 mínútur og fórum svo...

annars er fátt að frétta... geri ansi lítið þessa dagana... á eftir að kaupa hér um bil allar jólagjafirnar:S sem er ekki gott! ég er líka ekki nálægt því að komast í jólaskap:S það ætlar bara ekki að koma sama hvað ég reyni!!ég er alveg hætt að hlakka til jólanna held ég bara.... í dag eru 4 dagar til jóla og ég finn ekki vott af tilhlökkun! jafnvel þó að fólk segi "úúúú ég var að kaupa jólagjöfina þína" þá fæ ég ekki sting í magann! ég sem héllt að ég væri svo mikið jólabarn en já allt getur breyst!

vá þetta verður leiðinlegt blogg:S ég er gjörsamlega tóm! það er ekkert inní hausnum á mér ég er viss um að ef ég banka í hann kemur tómahljóð! þetta er að verða óhugnalegt! ég man ekkert og veit ekkert!

annars var ég að spá... afhverju í ósköpunum liggur öllum svona á að komast í samband! himin og jörð bara snúast um að eignast kærasta/kærustu! ég hreinlega skil þetta ekki ég persónulega nenni ég því engan veginn... mér liggur allaveganna ekkert á að drífa mig í samband! ég hef bara nóg að hugsa um mig þessa dagana! og sérstaklega er ég fegin að eiga ekki kærasta núna um jólin þar sem að þá þyrfti ég að gefa honum jólagjöf:S já held að það sé bara endalaust vesen;) og nú segir fólk kannski já en þú færð þá enga jólagjöf frá kærastanum einsog ég (einhver sem á kall) en ég meina ég eyði þá bara peningana sem hefðu farið í gjöf handa kærastanum og kaupi eitthvað handa mér og þá fæ ég eitthvað sem mér finnst pottþétt flott! já ég er með ráð við öllu!

hah!

en já ég er með ritstíflu og stíflað nef svo ég nenni ekki að reyna að punga út einhverri vitleysu!

sjáumst þótt síðar verði...

hulda run (faster) haha


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 14:07:47 / hulda

i only have a friend....

vá hvað það er leiðinlegt að vera veik! ég er virkilega að rotna! ég er búin að vera útilokuð frá umheimnum í 3 daga ég er búin að gleyma hvernig vinir mínir lýta út og breytist öruggelga í stein ef ég kemst í tæri við dagsljós! augun eru orðin svartir deplar og húðin skjannahvít... ég tala ekki íslensku lengur umla bara eitthvað...

já þetta er ljóta ástandið! en já ég er svosem að skána samt ennþá með hita:^) en fæ þó að fara til tannsa í dag jejjj einmitt það skemmtilegasta sem ég geri! vonandi fæ ég að minnsta kosti að glápa á friends meðan hann setur járn á bólakaf í tennurnar á mér!

annars er fátt í fréttum... skrýtið ég er búin að vera útilokuð frá umheiminum í 3 daga og fátt í fréttum:o hreint út sagt ótrúlegt! en já ég er allavega að standa mig í blogginu svo það er eitthvað jákvætt við þetta...

en já hvað er málið með þessa titla mína þeir passa á engann hátt við færslurnar sjálfar en það er bara ekki auðvelt að ætla að fara að skýra hverja færslu einhverju voða sniðugu nafni og þar sem að mér datt ekkert í hug og var að hlusta á tónlist í tölvunnu og þetta lag kom alltieinu já þetta líka svona "góða" lag sem maður fær óhugnalega mikið á heilann! þá ákvað ég bara að skella því hér sem titli á færslu! vá góð saga hulda rún! guð hvað ég er einhverf!

en já ég ætla að fara að hverfa inní sjála mig! lalallalalalalla

MER LEIÐIST!!

hulda rún!


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 16:48:07 / hulda

deep impact?

I've learned....That to ignore the
facts does not change the facts.

jahá þar hafið þið það!

já allt er nú til!

vá hvað ég elskaði þessa mynd þetta var sko grenjuatriði í lagi!það ætti að gera fleiri svona háklassamyndir! (þeir sem föttuðu ekki titilinn þá er þetta atriði úr hinni geysimöggnuðu deep impact!)

ætti að fá mér svona sparibauk!

hakuna matata!

hulda rún extra ultra djúpi og væmni bloggarinn!

āŗȌϒ㲜ဂ

» 10 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 19:27:18 / hulda

allt að gerast?

jæja þá ætli maður verði ekki að blogga svona annað slagið? en já ég er semsagt flutt:) gaman af því ég bý semsagt núna í drekagili 8 og eru vinir velkomnir í heimsókn en ætla að biðja aðra að halda sig frá!

en já annars er nú ekki mikið að frétta nema ég er veik:( ég hata að vera veik og reyni oftast að hunsa það.... var eitthvað voða slöpp í gær en dreif mig samt í skólann og entist allann daginn fór svo beint í vinnuna og var þar í smá stund en þá gafst e´g upp og fór heim.. svof svo frekar lítið í nótt sökum mikils hita höfuðverkjar og beinverkja... og fór ekki í skólann í dag og lifi á frostpinnum! já þetta er æði!

ég fór á Hjálma síðustu helgi og það var bara mjög gaman... fór fyrst til arnrúnar í varalita hælaskóateiti vorum þar 4 ég arnrún anna og sandra og vorum bara eitthvað að borða og spjalla og horfa á dís( gat verið) en svo komu auður, sara, harpa og linda... og svo fórum við á hjálma nema arnrún... hún var svo þreytt! leiðinlegt það... og harpa ætli hún hafi ekki verið að keyra;) heh

en já ég nenni ekki að skrifa mikið meira... hef svo ansi fátt að segja...

hulda rún hiti!


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 01:31:14 / hulda

eilíft stríð og hvergi friður...

verkir í fótum, illt í baki, ekkert loft, reykingastybba, hassstybba, þungur andadráttur, innilokunarkennd, bið, þreyta, verkir hér um bil allstaðar en allt svo þess virði! já þetta var lýsing á líðan minni á sigurrós tónleikunum en einhverveginn náði gleði, gæsahúð og sæluhrollur að yfirgnæfa þetta allt saman! ég virkilega táraðist þegar að þeir tóku hoppí polla! ég gjörsamlega missti mig!! þetta var án efa lífsreynsla! þið sem ekki fóruð getið ekki einusinni reynt að íminda ykkur þetta! en já eitt ótrúlegt! haldiði ekki að fólkið sem stóð beint fyrir framan mig eldri maður eða milli 50 og 60 og stelpa á 30 aldri hafi ekki bara byrjað að reykja hass... hann dró upp eitthvað lítið þarna og ég bara þetta er ekki sígaretta ekki er hann virkilega að fara að reykja hass núna en jújú svo kveiti hann í þessu og lyktin! ég héllt ég myndi æla!!

en já suðurferðin var bara góð í alla staði! sem er eitthvað annað en lífið þessa daganna í dag upplifði érg aftur svo mikið að tilfinningum! skjálfti, þurrkur í munni, hræðsla, hrollur, tár í augu, hraður hjartsláttur, hnútur í maga og öll inniflin í flækju! en í þetta skiptið var það ekki þess virði ónei síður en svo þetta átti sér stað á biðstofunni hjá tannlækninum! já einsog þeir sem þekkja mig vel vita hef e´g fóbíu gagnvart járni á háu! stigi og þá sérstaklega járn og tennur! taka skal fram að ég borða ennþá með teskeið því að ég get ekki hugsað mér að borða með matskeið það er aðeins of mikið að járni, gæti rekist í tennurnar! ég hreinelga get ekki verið í kringum fólk sem bítur í gaffalinn þegar það borðar og það eitt að reyna að horfa á tannlæknaatriði í mynd eða sjóinvarpsþætti er mér lífsómögulegt! já þetta er ótrúlega pirrandi! og ekki var tannlæknirinn með góðar fréttir sagði mér nánast bara að flytja inn á tannlæknastofuna því að tennurnar væru ekki í nógu góðu standi! hvernig má það vera? ég er ofvirk á tannburstanum!!:^)´

líf mitt er einsog kviksyndi þessa dagana ég sekk dýpra og dýpra dag eftir dag! ekki einn skapaður hlutur virðist ætla að ganga upp! þetta er ekki að verða sniðugt!

 

og ég fæ blóðnasir.....

meðan djaldið (hulan?) var ennþá fyrir!

gæsahúð!

en já set inn myndir bráðum! því miður eru engar frá tannsa tek kannski næst;)

en já ég verð að fara að drífa mig í háttinn!

góða nótt hulda rún! sem er búin að sjá sigurrós á tónleikum:haha:


» 18 hafa sagt sína skoðun

25.11.2005 16:30:57 / hulda

helgarfrí!

já það er loksinns komið langþráð!! helgarfrí og það er bara suður og sigurrós:haha: ég tel niður mínúturnar ég hlakka svo til! en já flýg semsagt suður á morgun um hádegi og heim um hádegið á mánudaginn:) þetta verður gaman!

já hérna kemur það sem ég ætla að gera fyrir sunnan:

# fara í ´buðir (með reyndar mjög takmarkaðan pening¨!)

# keyra um borgina!

# fara á sigurrós!!!!:haha:

# fara í leik þar sem ég þykist vera geðveikt rík og læt búðafólkið þjóna mér svoa eins og í pretty woman og máta allt í  búðinni, en kaupi svo ekki neitt sökum peningaleysis!

# fara út að borða með söndru á mc donalds!

# labba niður laugarveginn með regnhlíf í blómastígvélum hnésíðri kápu og auðvitað með take away kaffi!

# sitja inná kaffihúsi og yrkja ljóð!

# sofa út!!!

# sækja sandy á flugvöllinn!

# kaupa eina flík!

# leyta að mittisgullbelti! fyrir árshátíðakjólinn!

já og margt margt fleira! þetta var bara smá brot af því mikilfenglega ferðalagi sem ég á fyrir höndum!

en já ég er uppí skóla á fundi svo ég ætla að fara að vera virk! ´

en já sjáumst þó síðar verði!

hulda rún alveg að fara í borgina:haha:

ps: sandra ég elska þig!


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 14:29:06 / hulda

bilun?

talvan mín er biluð sem er ástæðan fyrir þessu bloggleysi! en ég er í skólanun pg er a' fara a' gera verkefni more to come (já ég kann þetta!)

hress!


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.11.2005 14:19:39 / hulda

kitl og myndir!

jahá ég ætla að stússast við að setja inn nokkrar myndir á eftir en nú ætla e´g að taka mig saman og gera þetta blessaða kitl.... dagný sumsé kitlaði mig eða það held e´g að þetta heiti og verð ég því að gera já eitthvað ruggl!

7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

1. koma í allar heimsálfurnar!

2. búa í að minnsta kosti 3 löndum!

3. hurða einhvern hefur lengi verið draumur! ( sandra og anna hurðuðu mig einu sinni með mínu leyfi en það tókst ekki nógu vel!)

4. fá 10 á prófi í ma!

5. eiga fornmunaverslun!

6. fara í fallhlífastökk!

7. verða fræg fyrir klappið mitt og söndru!   

7 hlutir sem ég get gert:

1. verið kaldhæðin.. alltaf!

2. hlegið af óförum annara! og mínum! 3. hlegið þegar ég á alls ekki að hlægja!  4. munað alla lagatexta held að hausinn á mér sé yfirfullur af þeim! (sem er ástæðan fyrir að ég get ekki lært stærðfræði! einfaldlega ekki pláss!) 5. blikkað augunum mjög hratt sungið klappað og stappað allt í einu 6. bundið réttan hnút með lokuð augun og hendur aftur fyrir bak! eða þetta gat ég á sínum tíma í skátunum og ég meina eitt sinn skáti ávallt skáti ekki satt?

7. talað mjög hratt!

 

7 hlutir sem ég get ekki gert:

1. verið alvarleg í langan tíma!

2. komist af lengi án þess að kaupa mér nýja flík... eða jafnvel skó!

3. sparað pening! það er ekki hægt!

4. komið mér frammúr á morgnanna! ligg alltaf og tel mínúturnar þangað til ég á að mæta...!

5. haldið einbeitningu nógu lengi til að læra fyrir próf!

6. lært stærðfræði!

7. ekki talað við önnu í lengur en 2 daga... sem getur veirð ansi erfitt núna!   

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið:

1. augun

2. brosið

3. góður húmor

4. strákar sem þurfa ekki alltaf að vera að sýna sig!

5. fötin... veit að þetta virðist vera grunnhyggið eða hvað sem það heitir en það heillar fátt meira en strákur í gamaldagsfötum:P

6. röddin!

7. gleraugu mér finnst eitthvað heillandi við stráka með gleraugu!

 

7 frægir sem heilla:

1. jhonny depp

2. barði!

3. kristinn gunnar blöndal!

4. adam brody

5. jim morrison!

6. Orlando Bloom hann er alltaf sígildur!

7. jude law

 

7 orð sem ég segi oftast:

1. get ég aðstoðað

2. nú eru bara .... dagar þangað til að anna kemur heim! 3. hvar er anna núna! 4. akkúrat!

5. erða hagginn í hádeginu?

6. jú sæl!

7. ég er ekki heimsk! sandra/margrét!

jahá þetta var nú bæði gott og gaman! en ég er að spá í að setja inn nokkrar myndir einsog ég sagði hérna fyrir ofan... en þetta er komið nóg af bloggið í bili...

harðar!

hulda rún vinnualki!


» 11 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 14:15:54 / hulda

jamm og jæja...

já loksinns ætla ég að taka mér tíma til að skrifa hér... og það er ekki hægt að segja að ég sé ekki að standa mig í kitlinu því að ég er buin að gera það tvisvar en það fer alltaf og eitthvað vesen en ég geri það við tækifæri!

annars er bara allt sæmileggt að frétta... styttist í sigurrós og svona... endalaus gleði.. en já það eru ekki stór plön fyrirhelgina nema fara í fjallið kannski? annars er ég að fara að vinna 28 tíma! sem er bara endalaus gleði

en já verð að fara sandy komin

hulda rún!


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4